fimmtudagur, nóvember 28, 2002

-Plan-
Í dag er fimmtudagur, en ekki mikudagur eins og sumir segja, og þá er við hæfi að birta helgarplanið eins og það lítur út á þessari stundu.
Morgundagurinn, sem er föstudagur en ekki mikudagur, hefst á því að búðin sem ég vinn í svona annað slagið verður skreytt fyrir einhverja hátíð sem verður haldin undir lok næsta mánaðar. Skilst að frelsari einhvers trúarhóps hafi fæðst þann 25.desember og því er fagnað með því að útdeila gjöfum og skreyta allt um kring. Eftir skreytingu verður svo farið á skemmtun á vegum Símans þar sem trúlega verður drukkinn bjór af miklum móð.
Á laugardaginn er svo stefnan tekin heim til Jónsa félaga míns hvar drukkinn verður bjór, hvað annað, og horft á nýjasta meistarastykki Woody Allen sem ku heita Hollywood Ending. Það er orðið rúmt ár síðan myndin var frumsýnd í USA og hún er ekki ennþá komin í íslensk bíóhús.....sem er náttúrulega skandall.
Sunnudagurinn er svo frátekinn fyrir stórleik Liverpool og ruddalýðsins frá Manchester. Ég er búinn að spá því að mínir menn vinni þennan leik 2-0 og mun undrabarnið Michael Owen gera bæði mörkin.
Þessi helgi hefur allt til að bera til að geta orðið snilldarleg og er gríðarleg eftirvænting í mannskapnum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com