miðvikudagur, nóvember 27, 2002

-Stórleikur-
Í kvöld mun knattspyrnufélagið Kóngarnir leika sinn fyrsta æfingaleik fyrir komandi átök í boltanum næsta sumar. Viðureignin í kvöld verður í Egilshöllinni glæsilegu í Grafarvogi og er andstæðingurinn að þessu sinni Carpe Diem. Við Kóngar lékum einmitt við CD menn síðasta sumar og þurftum að sætta okkur við 2-3 tap eftir að hafa komist yfir 2-0. Þannig að sjá má að við Kóngar eigum harma að hefna og verður væntanlega um gríðarlega spennandi viðureign að ræða.
Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að mæta í kvöld en annars mun ég koma með fulla leikskýrslu (full match report) við fyrsta tækifæri.

Fylgist með.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com