-Trjáfroskurinn-
Það er varla til betri aðferð til að rifja upp hvað maður gerði um helgina en að renna í gegnum debetkortafærslurnar frá liðinni helgi. Þetta var ég einmitt að gera og uppgötvaði mér til mikillar gleði að á laugardagskvöldið hefur verið n.k. hollenskt þema hjá okkur félögunum. Nú eru einhverjir eflaust að klóra sér í hausnum yfir þessu en staðreyndin er nú engu síður sú að við byrjuðum kvöldið á því að fara á stað sem er staðsettur í Hafnarstræti og kallast De Boomkikker (fengum að vita hjá eiganda staðarins að þetta þýðir Trjáfroskurinn) sem er staður með hollenskt þema og er rekinn af Hollendingum. Eigandi staðarins er frá Groningen, eftir því sem mér skilst, en þangað fórum við félagarnir einmitt í fyrrasumar og skemmtum okkur konunglega. Enda fór það svo að við vorum leystir út með gjöfum frá eiganda staðarins, fengum einhvurn drykk og veitingar og svo fékk ég forláta Heineken derhúfu og kann ég trjáfrosknum bestu þakkir fyrir það.
Eftir að hafa dvalið á þessum stað fórum við á Café Amsterdam......og nú þyrfti Jói eiginlega að útskýra hvers vegna í ósköpunum sá staður varð fyrir valinu.....því ekki man ég það. Þangað fara menn yfirleitt ekki inn nema tilneyddir eða að frír bjór sé í boði.
Fyrst maður er kominn í svona hollenska stemningu þá er ekki úr vegi að enda þetta á setningu sem félagi minn lét útúr sér í Groningen í fyrra á einhverjum veitingastað þegar hann ætlaði að biðja um kjúkling.
"Is there a chicken in here?"
.....og sumir nánast köfnuðu úr hlátri þegar þetta gerðist.
Jæja nú er þetta orðinn full lókal húmor og best að kveðja bara.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home