-(World) fame at last!-
Á dauða mínum átti ég von, en að verða gerður að spurningarefni í þættinum Popppunktur er eitthvað sem mig óraði ekki fyrir. Í lokin á hraðaspurningunum í þættinum í gær kom þessi líka skemmtilega spurning: "Hvar tók hljómsveitin Funkmaster 2000 upp tónleikaplötu sína?" .....eða eitthvað álíka. Litla hjartað tók kipp og ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta. Fyrir þá sem ekki vita var ég í hljómsveitinni Funkmaster 2000 og spilaði einmitt inn á þessa plötu sem var bæ ðe vei tekin upp á veitingahúsinu Vegamót. Dr. Gunni hefur greinilega haft okkur svona ofarlega í minni, enda tók hann "frægt" viðtal við tvo meðlimi hljómsveitarinnar undir fyrirsögninni "Fönkið kemur úr rassgatinu" sem vakti ekki mikla lukku hjá nokkrum meðlimum í fjölskyldu minni.
En nú bíð ég sem sagt eftir að sjá nýjar sölutölur yfir mest seldu plötur landsins því ég trúi ekki öðru en að platan taki mikinn kipp eftir þessa gífurlega góðu auglýsingu. Spurning hvort KK þurfi ekki að fara að láta búa til fleiri eintök.
Annars geta áhugasamir haft samband við mig eða KK ef ske kynni að menn vildu eignast þennan disk.....hann er súper góður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home