-Neyðarástand-
Í morgun var Ármúlanum, þar sem ég vinn, lokað af lögreglunni á kaflanum frá Vegmúla gatnamótunum að Selmúla. Við hérna í búðinni vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið og fengum engar upplýsingar uppgefnar og að sjálfsögðu fór ímyndunaraflið af stað. Á þessum tímum hryðjuverka datt manni einna helst í hug að einhver hefði hótað að sprengja upp Nýju efnalaugina.....nú eða jafnvel Landssímann og greip eðlilega um sig mikil skelfing. Eins kom alveg til greina að Ástþór Magnússon hafi farið á tölvupósts fyllerí enn eina ferðina. Einn og einn bíll smeygði sér fram hjá vegatálmum lögreglunnar og voru hinir sömu eltir upp á ofsahraða og hefur væntanlega verið stungið í steininn fyrir athæfið.
Svo loksins þegar hýsterían fór að fara af fólki kom í ljós að einhver jólaskreyting hafði fokið og lá á götunni (!). Það þurfti sem sagt að fá tvo lögreglubíla og láta loka Ármúlanum í hálftíma útaf einhverju jólaskrauti. Ekki þori ég að skjóta á viðbrögðin sem hefðu orðið við sprengjuhótun.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home