laugardagur, desember 14, 2002

-Pressa-
Nú er sá tími ársins þegar nánustu ættingjar eru að spyrja mann hvað mann langi í jólagjöf. Ef maður dirfist að vera hógvær og nægjusamur og segja "....hva, ég þarf ekki neitt" þá verður fólk bara fúlt og segir manni að vera ekki með svona rugl, eins og það sé alveg heilög skylda að maður sé með fimmtíu atriða lista yfir það sem mann vantar eða langar í. Reyndar er einn hlutur sem mig vantar og langar í en svo framarlega sem fólk er ekki að fara að eyða 100.000 kalli í mann þá er ég ekki að sjá að ég fái nýtt trommusett í jólagjöf.
Það er reyndar eitt sem ég sakna núna á aðventunni og það er fréttin um öryrkjann sem var að fara með allar bæturnar sínar fyrir þennan mánuð og ætlaði að versla jólagjafir en var síðan rændur af hópi unglinga. Síðan hefst umfangsmikil leit að þessum unglingum og opnaður er reikningur í sparisjóði vélstjóra svo aumingja maðurinn/konan geti haldið gleðileg jól. Ég held bara að svona frétt hafi komið um nánast hver einustu jól frá því að ég man eftir mér. Kannski ég taki það bara að mér að vera þessi öryrki þessi jólin.
Annars verður maður að passa sig á að tala ekki svona um öryrkja annars fær maður Garðar Sverris á bakið og ekki vill maður það svona yfir há-skaðræðistímann. Enda eru öryrkjar örugglega ágætis fólk.

Yfirvöld í kóreska alþýðulýðveldinu, sem útleggst alla jafna sem Norður Kóera, eru komin í jólaskapið og farin að "óska" Bandaríkjamönnum "hraklegum ósigri og dauða". Ætli þeir hafi sent jólakort í Hvíta húsið. "Kæri George. Á þessum árstíma er ekki úr vegi að óska þér og þjóð þinni hraklegum ósigri og dauða. Með jólakveðju, forseti Norður Kóreu"
Reyndar minnir þetta mig á jólakortið sem ég fékk frá Dominos í fyrra, þegar starfsmenn fyrirtækisins fengu ekki einu sinni kort fékk ég fallegt kort frá þeim enda voru viðskipti mín við þetta fyrirtæki óeðlilega mikil það árið.......og eiginlega ætti ég að fá afslátt út á það.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com