laugardagur, desember 21, 2002

-Nú er allt að gerast-
Síðustu dagar hafa verið viðburðarríkir í meira lagi og í pistlinum í dag koma við sögu Coldplay, Ingibjörg Sólrún og Lee Sharpe svo fáeinir séu nefndir.
En byrjum á byrjuninni. Coldplay spiluðu í höllinni á fimmtudagskvöld og eins og komið hefur fram var ég viðstaddur þá tónleika. Þetta voru líklega beztu tónleikar sem ég hef verið viðstaddur......allavega síðan ég sá Sting í Höllinni um árið. Ash byrjaði á að hita mannskapinn upp og tókst það þokkalega. Ég hef aldrei verið talinn aðdáandi þessarar hljómsveitar en þau virkuðu ágætlega á mig og áttu einhver tvö þrjú mjög fín lög en restin var allt í lagi, svo sem ekkert meira en það.
Svo þustu Chris Martin og félagar á svið og byrjuðu á snilldarlaginu Politik, sem er eitt besta lag sem þeir hafa sent frá sér, og fóru því næst í Shiver af fyrstu plötunni. Pottþétt byrjun og þetta átti bara eftir að bestna. Hæst fannst mér þeir rísa þegar þeir tóku Everything´s not lost enda rosa climax lag og ekki spillti fyrir þegar herra Martin laumaði inn smá tilvitnun í Svefn-g-engla Sigurrósar við mikla hrifningu.
Drengirnir enduðu svo kvöldið á jólalaginu Have yourself a merry little christmas eftir rúmlega eins og hálfs tíma spilerí.

Það eru tvær manneskjur sem eru að ég held að gera mjög vont carrier move þessa dagana. Þetta eru annars vegar Ingibjörg Sólrún og hins vegar Lee Sharpe.
Sýnist Ingibjörg Sólrún vera að gera mjög slæma hluti með því að vera að bjóða sig fram í það að verða varaþingmaður Samfylkingarinnar og er um leið að greiða leið Sjálfstæðisflokksins inn í borgarstjórn. Ekki það að ég gráti það enda eiga kommúnistar ekki að fá að halda um stjórnartauma í einu eða neinu.
Lee Sharpe aftur á móti ætlar að flytjast til Grindavíkur til að þurrka sig upp og fá að spila aftur í Evrópukeppni. Er Grindavík virkilega bezti staðurinn til þess? Held að maður með jafn gríðarlega hæfileika og Sharpe gæti komist að hjá stærri klúbb í Skandinavíu.....og þá er ég ekki að tala um FH, enda FH ekki í Evrópukeppninni. Miðað við allan þann gífurlega fjölda af misgóðum Íslendingum sem eru að fara til Lyn og Malmö þá ætti Sharpe að eiga greiða leið í þessi lið. Reyndar gæti Grindavík verið ágætis staður til að þurrka sig upp enda ekki langt í Byrgið. Hann gæti verið þar á daginn og spilað svo fótbolta á kvöldin. Það er kannski díllinn sem hann er að gera.
Annars væri gaman að fá drenginn í Krikann og þá efast ég ekki um að hann fengi harða meðferð hjá Pferdinum sem hefur sérhæft sig í að brjóta niður andstæðinga FH liðsins með skemmtilegum athugasemdum.

Svo er það stærsti leikurinn í Liverpool á morgun þegar bezta lið borgarinnar tekur á móti Everton. Fjölmennum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com