miðvikudagur, desember 18, 2002

-Það eru ekki alltaf jólin-
Nú er bara tæpur sólarhringur í það að ég fari á mína aðra tónleika með hljómsveitinni Coldplay.....og eftirvæntingin er gríðarleg. Hef verið aðdáandi þessarar sveitar síðan ég fékk diskinn Parachutes í jólagjöf árið 2000, þannig að ég fagna tveggja ára Coldplayaðdáunarafmæli um þessar mundir og því vel við hæfi að fá sveitina til að spila af því tilefni.

Eitt langar mig að vita. Fattar einhver þetta fár með storkinn Styrmi sem var klófestur fyrir austan í kvöld? Ekki geri ég það allavega. Er eitthvað nýtt Keikó ævintýri í uppsiglingu? Reynum að sleppa storki aftur út í villta náttúru fyrst okkur mistókst með Keikó. Hallur Halls fær væntanlega nýtt gæluverkefni núna.

En meðan ég sit og skrifa þetta eru mínir menn að valta yfir Aston Villa þannig að ég ætla að beina athyglinni í þann farveg um stund.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com