mánudagur, desember 30, 2002

-Um áramót-
Á degi sem þessum er ekki úr vegi að líta um öxl og skoða atburði ársins sem er að líða. Á tónlistarsviðinu, sem löngum hefur verið mitt uppáhaldssvið, gerðist margt og nokkrir nýjir listamenn yljuðu manni um hjartarætur auk þess sem gamlar kempur sendu frá sér efni. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna Dave Matthews Band sem áttu gott ár, gáfu út eina stúdíóplötu (Busted Stuff) sem er brill og gáfu auk þess út tónleikadisk (CD og DVD) sem er ekki síðri snilld. Þar að auki komu út frábærar plötur með t.d. Coldplay, Norah Jones, Leaves og Sigurrós svo einhverjir séu nefndir....já og ekki má gleyma Peter Gabriel sem kom líka með firnagóða plötu eftir langa bið.....ja sei sei.
Svo tókst mér að lauma mér inná nokkra tómleika á árinu eins og Travis, Leaves, Hrafnagaldur Óðins með Sigurrós og Sinfóníunni (hví er ekki sagt simfóníunni?) og að sjálfsögðu Coldplay og Ash og þá var nú kátt í höllinni. Á næsta ári er svo stefnt á að fara á tónleika á erlendri grundu með stórhljómsveitinni REM en það skýrist allt saman á næstu mánuðum.

Á árinu gróf ég upp trommukjuðana og hóf að berja húðir á ný eftir langt hlé og sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum öllum saman (hvar er trommusettið sem ég átti að fá Örvar frændi?).

Ýmislegt fleira gerðist á þessu herrans ári en það er efni í annan pistil....eða jafnvel bók ef því er að skipta og því skal staðar numið hér og ætla ég að nota tækifærið og óska öllum dyggum lesendum gleðilegs nýs árs og sérstakar stuðkveðjur fá Kóngarnir með þökkum fyrir gott sumar.

Takk fyrir mig og bæjó

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com