laugardagur, desember 28, 2002

-Jólin allstaðar-
Dagurinn í dag er búinn að vera merkilega leiðinlegur en hið sama verður ekki sagt um gærkvöldið. Þá hittumst við félagarnir ásamt nokkrum mökum (reyndar er ég alveg makalaus þannig að ef þið vitið um einhverja þá bara hafa samband) og spiluðum fram eftir nóttu. Fyrst var tekið í nýja spilið Party & co og var það að gera ágætis hluti. Reyndar urðum við Pferdinn lang seinastir enda ekki mjög vanir að tjá okkur með látbragði eða í teikningum......ég meina hvernig leikur maður orðið Svíkja? Eftir þetta spil var tekið í Gettu betur spilið og þar vorum við Pferdinn á heimavelli enda rusluðum við því spili upp með glæsibrag og mikilli herkænsku. Já það getur stundum borgað sig að muna eftir Kortsnoi stórmeistara if ya know what I mean....nudge nudge.
Annars eru Dave Matthews Band tónleikarnir sem ég fékk í jólagjöf að gera gríðargóða hluti og hvet ég alla áhugamenn um trommuleik til að kíkja á Carter Beauford, maðurinn er einfaldlega geðsjúkur bakvið settið en samt alltaf með sólheimabrosið eins og þetta sé æðislega einfalt sem hann er að gera.......gott ef hann minnir mig ekki bara á sjálfan mig.....iiiiiiiii!!!

Sá einhverja frétt í gær eða fyrradag þar sem verið var að vitna í Völvu Vikunnar og sú er aldeilis ekki að taka sénsa með spádóma sína þetta árið. T.d. mun einhver kona vera áberandi í kosningunum fyrir Samfylkinguna. Heitir þetta ekki bara að spá aftur í tímann? Svo spáir hún jarðhræringum á árinu en treystir sér ekki til að segja til um hvort það gjósi einhvers staðar. Hefur eitthvað ár verið laust við jarðhræringar? Er þetta ekki eins og að spá því að það rigni á árinu?

Svo eitt í lokin. Ef einhver veit hvað er að gerast hjá Liverpool liðinu í fótbolta þá má sá hinn sami senda mér tölvupóst, ég skal reyna að koma honum áfram til Húlla með von um góða úrlausn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com