-Íþróttafréttir-
Nú rétt í þessu var enn einum stórleik minna manna í Liverpool að ljúka og að sjálfsögðu tapaðist hann á sannfærandi hátt en það sem var öðruvísi við þennan tapleik var að hann var á móti liði sem er í næstu deild fyrir neðan mína menn. Já ég er mjög glaður.
Spurning hvort maður fari ekki að fylgjast með hinni ævafornu íþrótt handbolta en það ku víst fara fram heimsmeistaramót í þeirri "göfugu" íþrótt í kringum afmælið mitt seinna í mánuðinum. Þetta er held ég eina íþróttin í heiminum þar sem heimsmeistaramótið er veikara en sérstök álfumót eins og Evrópumótið. Mér skilst t.d. að Ísland sé í riðli með Qatar, Grænlendingum og Áströlum. Ástralir t.d. höfðu ekki séð handbolta þegar þeir ákváðu, í einhverju flippi örugglega, að senda handboltalið á Ólympíuleikana í Sydney árið 2000 enda svo sem ekki langt að fara fyrir smá flipp.
En ég kem örugglega til með að taka upp leik Qatar og Grænlendinga enda verður þar væntanlega á boðstólnum handbolti á heimsmælikvarða. Ég held að þessar þjóðir hafi ekki einu sinni unnið sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti í bridds, hvað þá eitthvað meira en það.
Ég verð nú reyndar að brjóta odd af oflæti mínu og viðurkenna að ég hef verið viðstaddur leik á HM í handbolta. Það var að sjálfsögðu á keppninni sem var haldin hér heima árið 95 og fór ég þá í Kaplakrikann til að sjá viðureign Rússa og Slóvena sem endaði með góðum sigri Rússa í gríðarlegri stemningu u.þ.b. 45 áhorfenda.
Þannig að handbolti er framtíðin.....allavega þangað til Liverpool fer að spila fótbolta að nýju. Læt hér fylgja með slóðina á heimasíðu alþjóða handknattleikssambandsins en þess má geta að þangað hafa komið tæplega 80.000 gestir sem er ekki amalegt.
www.ihf.info

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home