sunnudagur, janúar 19, 2003

-Helgin-
Þá er enn ein helgin að baki. Þessi var einstaklega skemmtileg og mikið að gerast. Á föstudaginn fór ég í Tónlistarskóla FÍH og djammaði þar með tveimur drengjum. Langt síðan ég hef lamið húðirnar og svo bætti ég um betur og tók smá tilþrif á conga trommur....bara snilld. Laugardagurinn fór að mestu í að horfa á fótbolta hvar mínir menn í Liverpool tóku sig loksins til og unnu eins og einn leik....bara snilld. Um kvöldið fór ég svo til Heyzu gellu og drakk með henni bjór og svo kíktum við í bæinn.....mikið snilldarkvöld. Sunnudagurinn fór svo í það að liggja uppi í rúmi frameftir degi og svo kl. fjögur var stórleikur á Ásvöllum í Hafnarfirði hvar liðið mitt Kóngarnir spilaði við Strumpana. Skemmst er frá því að segja að þetta var ekki dagur Kónganna. Lokatölur 3-1 fyrir Strumpa og tókst mér að klúðra tveimur úrvalsfærum. Ég lofa að fara að bæta mig í markaskorun enda ekki skorað mark síðan í júlí árið 2001. Það má líkja mér við Ryan Giggs hvað þetta varðar en við ætlum báðir að taka okkur saman í andlitinu.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com