-...en orðspor deyi aldrei...-
Veit ekki hvort þetta er rétt quotað í Hávamál en mér varð einmitt hugsað til þeirra þegar ég frétti um lát tveggja skærustu stjarna á popphimninum. Þetta eru að sjálfsögðu Maurice "Mo" Gibb og Micky Finn. Sá fyrrnefndi gerði garðinn frægan með hljómsveit bræðra sinna sem var kölluð Bee Gees og er hvað frægust fyrir lög eins og Odessa (City on the black sea), You´ll never see my face again og Black Diamond. Hinn síðarnefndi er kannski ekki minna þekktur enda spilaði hann á bassa og slagverk í hljómsveit Marc Bolan, T Rex. Hljómsveitin sú markaði djúp spor í rokksöguna á áttunda áratug síðustu aldar og er það ekki hvað síst fyrir tilstilli Micky Finn.
Já, tónlistarheimurinn á um sárt að binda um þessar mundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home