-Menning-
Fór í kvöld á stórskemmtilega tónleika í Salnum í Kópavogi.....ótrúlegt að það sé hægt að sækja menningarviðburði í þeim bæ. Þarna var slagverkshópurinn Benda að spila ásamt tveimur píanóleikurum. Í Bendu eru tveir fyrrverandi trommukennarar mínir, þeir Eggert Pálsson og Steef van Oosterhout, báðir algjörir snillingar og frábærir tónlistarmenn. Á þessum tónleikum voru tekin tvö verk eftir Benjamin Britten, tvö verk eftir John Cage og svo að lokum sónata eftir Béla Bartók. Í heildina mjög góðir tónleikar þó svo að slagverksverkin eftir Cage hafi heillað mig meira en píanóstykki Britten. Nú verða Britten aðdáendur, sem ég veit að eru margir og lesa þessu síðu reglulega, alveg brjálaðir.
En annars segi ég bara takk fyrir mig Benda.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home