fimmtudagur, janúar 16, 2003

-Eignarhald-
Tízkuorð dagsins í fjölmiðlaheiminum er eignarhald. Hver á Fréttablaðið? Rýrir það traust fjölmiðlanna að vita ekki hver það er sem borgar laun starfsmanna? Ég gat ekki verið þekktur fyrir að láta mitt eftir liggja í þessari umræðu og því sendi ég fyrirspurn á einn af mínum uppáhaldsfjölmiðlum frettir.com hvar ég spurðist fyrir um pólitízka stöðu ritstjórans og hverjir það séu sem eiga miðilinn. Það er skemmst frá því að segja að upp gusu heitar umræður á síðunni og í dag birtizt svar frá ritstjórn sem sjá má í heild sinni á síðunni. Hvet ég alla til að kíkja á þetta enda mikið kappsmál í lýðræðisríki.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com