-Handboltafár-
Þá er hm í handbolta "loksins" farið af stað. Fyrsti leikur búinn og ein spurning sem brennur á vörum allra í dag er einfaldlega: Hvers vegna í ósköpunum eru Ástralir með í þessari keppni? Þvílíkan handbolta hef ég aldrei á ævinni séð. Kvennalið Hauka hefði rúllað þeim upp, með fullri virðingu fyrir kvennaliði Hauka. Ég veit ekki hvaða snillingi datt í hug að láta Eyjaálfu fá sæti á þessu móti. Eyjaálfa á ekki einu sinni fast sæti á HM í fótbolta og þó eru Ástralir með sæmilegasta landslið í þeirri íþróttagrein.
Í kvöld er svo annar stórleikur þegar við mætum frændum okkar Grænlendingum. Ég segi fyrir mitt leyti að leikur Liverpool og Sheffield Utd. sem líka fer fram í kvöld vekur mun meiri áhuga. Áfram Ísland!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home