-If it doesn't have siamese twins in a jar, it is not a fair - H.J.Simpson-
Önnur umferð í heimsmeistaramótinu í boltakasti og hrindingum fór fram í gær að viðstöddu fámenni. Íslendingar lentu í miklu basli með spræka Grænlendinga, sem þó virtust nánast bara vera Danir dulbúnir sem Grænlendingar. M.a.s. gamall skólabróðir minn birtist allt í einu í grænlenska landsliðsbúningnum undir nafninu Hans Peter Motzfeldt.....reyndar hét hann það líka þegar hann var í Flensborg, en samt er einhver fnykur af þessu, enda alltaf einhverjir skandalar í gangi í þessari "íþrótt".
Í dag er frí en á morgun verður svo fyrsti alvöru leikur keppninnar. Ég hlakka svo til.
Á morgun er svo líka afmælið mitt. Já góðir lesendur ég á afmæli á sama degi og gosið í Vestmannaeyjum hófst. Gaman til þess að vita að ákveðinn hópur landsmanna hugsi til afmælisdags míns með hryllingi. Annars held ég að Eyjamenn ættu að fara að hætta að velta sér uppúr þessu og horfa fram á veginn. Eða eins og Kang (önnur geimveran í Simpsons) sagði þegar hann bauð sig fram til forseta Bandaríkjanna: "We must look forward, not backwards. Upward not forward....and constantly twirling twirling twirling". Bara snilld.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home