-JTR-
Ég er búinn að vera með lagið JTR með DMB á heilanum í allt kvöld. DMB stendur að sjálfsögðu fyrir Dave Matthews Band (ef einhverjum finnst ég tala of mikið um þessa hljómsveit þá endilega látið mig vita) og JTR stendur fyrir John the Revelator sem var upphaflegt nafn lagsins en svo var það stytt niður í JTR eftir að kaflinn um Opinberunar Jón (ég þýddi þetta sjálfur) var tekinn út úr textanum. Lagið átti að koma út á disknum Busted Stuff en hljómsveitin ákvað að sleppa því og lagið kom ekki út fyrr en í haust á tónleikadisknum Live at Folsom field. Ég gæti haldið áfram endalaust að tala um þetta en ég hugsa að ég sleppi því í bili.
Niðurlæging minna manna í Liverpool heldur áfram og í kvöld urðum við fyrir barðinu á leikmönnum Crystal Palace sem er víst lið sem er staðsett í London höfuðstað Englands. Ekki nóg með það að liðið hafi tapað heldur vorum við einum fleiri stóran hluta leiksins. Þetta er bara snilld. En við verðum víst bara að sætta okkur við að það er ekki hægt að vinna allt og við verðum bara að ná í hina þrjá titlana sem eru ennþá í boði. Nú er það bara gamla "nú getum við bara einbeitt okkur að deildinni í staðinn" klisjan sem gildir.
Svo rétt í lokin langar mig að minna á hið stórkostlega knattspyrnulið Kóngarnir sem er að hefja undirbúningstímabilið fyrir komandi átök í boltanum. Liðið er að safna fyrir nýjum búningum og eru allir styrkir, stórir sem smáir, velþegnir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home