þriðjudagur, janúar 28, 2003

-Sorgardagur-
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er ver.
Ef værir þú hjá mér vild´ég glaður
verða betri en ég er.


Því eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.


Þetta ljóð finnst mér eiga einstaklega vel við í dag. Í dag á ég færri systkini en ég átti í gær. Höggvið hefur verið djúpt skarð í systkinahópinn. Hún Harpa systir, sem reyndar varð ekki systir okkar fyrr en íslendingabók.is opnaði, er ekki lengur skráð systir okkar. Hún hvarf jafn snögglega úr lífum okkar eins og hún hafði komið inn.....en þannig hefur hún trúlega alltaf verið. Þessi óútreiknanlega systir sem hagaði sér eins og vindurinn. En það má með sanni segja að hún Harpa hafi gefið lífinu lit þann stutta tíma sem hún var partur af fjölskyldunni. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þessa fyrrum systur mína og vona að hún sé ánægð á nýja staðnum með nýju fjölskyldunni.
Í guðs friði.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com