-Þessi býsnavetur er farinn að fara í taugarnar á mér-
Rúðuþurrkurnar á bílnum mínum tóku upp á því að bila í morgun þegar ég var rétt lagður af stað úr Hafnarfirði á leið inní Reykjavík. Eins og flestir vita var einhver versta slydda sem dunið hefur á íbúum höfuðborgarsvæðisins í mörg herrans ár. Þetta þýddi það að ég keyrði þessa leið blindandi og kom sér vel að hafa keyrt þessa leið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í gegnum tíðina. En mér tókst blessunarlega að komast heilu og höldnu á leiðarenda og það er jú það sem skiptir máli.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home