-Sögur af andláti mínu eru stórlega ýktar-
Sú saga hefur gengið um Inter-netið að undanförnu að Dave Matthews, forsprakki hljómsveitarinnar Dave Matthews Band, hafi látist vegna ofneyslu eiturlyfja. Ég get glatt dygga aðdáendur kappans með því að það er ekkert til í þessum sögusögnum og er strákurinn bara við hestaheilsu sem og fjölskylda hans í Charlottesville í Virginíufylki. Þessu til staðfestingar get ég sagt ykkur að ég fékk tölvupóst frá honum í gær, sem hafði reyndar ekkert með andlátsfregnir hans að gera, og eftir því sem ég bezt veit eru engin dæmi þess að látnir menn hafi sent tölvupóst.
Þetta breytir þó ekki þeirri staðreynd að Paul McCartney drukknaði árið 1967 eins og margoft hefur verið sannað.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home