-Kingpin-
Starfsmannafélag Landssímans hélt í gær sína árlegu keilukeppni. Kannski ekki eitthvað sem er færandi í frásögur nema hvað að ég var beðinn (jafnvel grátbeðinn) að spila með liði verslunarinnar í Smáralind. Ég ákvað að slá til og náði líka alveg þokkalegum árangri. Í fyrri leiknum tókst mér að næla mér í 137 stig sem er bara ansi nálægt mínum bezta árangri. Seinni leikurinn fór reyndar eitthvað fyrir ofan garð og neðan og varð skorið eitthvað aðeins lægra.
Þá er bara að vona að þessi árangur dugi liðinu til að komast í úrslit. Spennan er gríðarleg.
Fylgist með.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home