mánudagur, febrúar 03, 2003

-Eurovision-
Sjónvarpið byrjaði í kvöld að spila lögin sem keppa í undankeppni Eurovision og þvílík lög. Þessi fyrstu þrjú lofa sko alls ekki góðu fyrir keppnina. Lagið hennar Heiðu var kannski skást en lagið hans Frissa Karls (eða Krissa Farls eins og gárungarnir kalla hann) hljómaði eins og eitthvað afgangslag úr Lion King. Reyndar held ég að það skipti engu máli hvernig lögin hljóma því mér skilst að það sé símakosning og ég er ansi hræddur um að 15 þúsund platna söngkonan Birgitta Haukdal eigi eftir að rúlla því upp. Hugsa að það myndi engu breyta þótt hún myndi ropa textann. Já sei sei.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com