þriðjudagur, febrúar 11, 2003

-Já Hemmi minn-
Ég er búinn að komast að því að ég er líklega einn vinsælasti keiluspilari sem unnið hefur hjá Landssíma Íslands. Önnur umferð í keilukeppni hjá því ágæta fyrirtæki fór fram í kvöld og í þetta sinn var ég grátbeðinn um að sjá um að hífa aðeins upp skorið hjá farsímaverkstæðinu. Ekki sáust jafn glæsilegar tölur núna og í síðustu viku en ég varð efstur í fyrri umferð með 114 stig sem er nú frekar slappt. Seinni umferðin var verri en þó fór ég yfir 100 stiga "múrinn".

Sjónvarpskeppnin í Gettu betur byrjar á fimmtudaginn og þar verður gamli skólinn minn Flensborg í sviðsljósinu. Fyrirliði liðsins er einmitt frændi minn og munu hann og félagar hans kljást við liðið sem hefur einokað þessa keppni síðustu tíu árin, Menntaskólinn við Lækjargötu. Margir eru á því að ML-ingar eigi eftir að taka þetta létt en ég hef trú á mínum mönnum og sendi þeim baráttu -og stuðkveðjur. Í það minnzta verð ég á svæðinu og hvet liðið áfram, en það er bara synd að Flensborg eigi ekki lengur jafn öfluga stuðningsmenn og Big Ö sem fór á kostum í sjónvarpinu fyrir tja meira en tíu árum síðan. Keppnin fer fram í Smáralindinni og hefst klukkan fjögur fyrir þá sem hafa áhuga....þetta verður rosalegt.

Morgundagurinn verður væntanlega hátíðardagur. Á morgun gerast undur og stórvirki. Á morgun fæ ég fyrstu sex þættina úr nýjustu Simpson seríunni á VCD og þá verður nú kátt í höllinni.
Af því tilefni:

Homer: Hey, we didn't have a message on our answering machine when we left. How very odd.

Homer: I am the piano genius from the movie "Shine."
Guard: And your name is...?
Homer: Uhh... Shiney McShine.


Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com