mánudagur, febrúar 10, 2003

-Ja sei sei-
Að höfðu samráði við mína lögmenn hef ég ákveðið að taka út könnunina um séra Bjarna Jónsson. Könnun þessi leiddi það þó í ljós að Bjarni er jafn umdeildur í dag og hann var fyrir hartnær öld. En hætta ber leik þá hæzt hann stendur og oft er í holti heyrandi nær.

Ég vil taka undir með manninum sem skrifaði í lesendasíðu DV í dag. Ég man því miður ekki hvað maðurinn heitir, en hann var sem sagt á þeirri skoðun að klámvæðingin og fleira slæmt sem dunið hefur á Íslendingum undanfarin ár séu allt afleiðingar þess að við hættum að þéra ókunnugt fólk og hættum að nota setuna (insert: aulabrandari hér) þ.e. bókstafinn Z. Ég er reyndar talsmaður þess að við tökum Z upp aftur í okkar tungumáli enda fallegur stafur og reyni ég að nota hann hvenær sem tækifæri gefst.....þ.e. þar sem ég veit hvar á að nota þennan staf. Reglan um það er vízt soldið flókin og hef ég aldrei lært hana en þykist þó vita nokkurn veginn hvernig hún virkar......svo gæti ég náttúrulega bara verið að steypa.

Svo kæri lesandi, ég kveð yður með söknuð í hjarta en veit fyrir vízt að leiðir oss eiga eftir að liggja saman á nýjan leik.....og munið að smæla framan í heiminn því þá smælar heimurinn framan í yður.

.....jæja svefngalsinn alveg að fara með mann.

...en allt í einu mundi ég eftir snilldarsetningu úr Simpsons. Þetta er úr byrjuninni á X-files þættinum, sem bæ ðe vei er snilld:

Hello, I'm Leonard Nimoy. The following tale of alien encounter is true and by true, I mean false. Its all lies. But they're entertaining lies, and in the end isn't that the real truth? The answer is no.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com