-Helgin-
Komiði sæl.
Ég komst að ýmsu þessa helgina. Ég komst að því m.a. að bróðir minn getur sungið, það er ekki gott að blanda saman kók og bjór og að það er stytta af sér Bjarna Jónssyni fyrir aftan dómkirkjuna en það varð uppspretta mikilla deilna um helgina sem ekki verður farið nánar út í að sinni.
Ég hef oft haldið því fram að það að blanda saman tveimur góðum hlutum þýði ekki endilega að útkoman verði súper góð. Hef ég þá í því sambandi oft nefnt að það sé eflaust ekki gott að blanda saman kók og bjór. Ég komst að þessu af eigin raun um helgina. Það er nefnilega til drykkur sem heitir hvorki meira né minna en Black Elvis og á miðanum á flöskunni stendur: Beer meets Cola. Þetta er í stuttu máli sagt versti drykkur sem ég hef smakkað og efast ég um að hann hafi náð miklum vinsældum.
Ég fór á þorrablót hjá knattspyrnudeild Hauka í gær þar sem bróðir minn tróð upp ásamt nokkrum leikmönnum úr Haukum. Gríðarlegir tónlistarhæfileikar í þessari fjölskyldu,ja sei sei. Skemmti mér bara nokkuð vel þarna og svo var skundað í bæinn hvar tekið var nokkuð vel á því sem endaði með rifrildi um ágæti séra Bjarna Jónssonar vígslubiskups við Dómkirkjuna. Mjög eðlilegt umræðuefni kl. fjögur á laugardagsnóttu. En það var nú bara gaman að því.
Ég ætlaði að skrifa um Ingibjörgu Sólrúnu og ræðuna hennar í dag um afskipti stjórnmálamanna af fyrirtækjarekstri en ég er einfaldlega ekki að nenna því og aukinheldur held ég að það yrði bara leiðinlegt blogg......og ekki viljum við nú að það gerist.
P.s. uppáhaldslagið mitt í dag er Breathe (in the air) með Pink Floyd. Mæli með að menn kíki á það. Bara snilld.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home