fimmtudagur, febrúar 13, 2003

-Rusl-
Herra Hotmail er soldið farinn að fara í pirrurnar á mér undanfarið. Hann er farinn að hleypa alls konar RUSLpósti inná pósthólfið mitt. Ég sem skrifaði undir samning þess efnis að ég yrði laus við svona leiðindi. En nei nei, núna fæ ég sendan einhvern póst sem auglýsir "awesome crazy insertions up her ass...eitthvað eitthvað" og einhverjar stúlkur sem vilja endilega sýna mér myndir af sér úr sumarfríinu sínu og meira að segja myndir teknar á brúðkaupsnóttina hjá einhverju pari. Ekki meir ekki meir.

Það fór eins og maður bjóst við í Gettu betur í dag. MR RUSLaði upp annars sprækum Flensborgurum. Verð samt að hnýta í frænda minn fyrir að hafa ekki vitað að Eiki Hauks tók þátt fyrir Noreg í Júróvisjón. En ég ætla allavega að veðja peningunum mínum á að MR vinni þessa keppni í ár. Þorir einhver að veðja á móti mér?

Nýjasta Simpson serían er sko ekkert RUSL. Búinn að fá sex fyrstu þættina á disk og þeir eru hver öðrum betri og svei mér þá ef þættirnir fara ekki bara batnandi með hverju ári. Ég vona bara að Stöð 2 fari að sýna þessa snilld aftur, orðið alltof langt síðan Homer var á skjánum.

Þetta blogg var það fyrsta í nýjum stíl sem ég ætla að þróa með mér, svokallað þema blogg. Þema dagsins var orðið RUSL og tókst mér að nota það í þremur mismunandi myndum. Er þetta vísbending um að blogg sé að verða þreytt eða erum við í stöðugri framþróun, alltaf að finna nýja fleti á þessu skemmtilega tjáningarformi? Það er eitthvað sem tíminn einn mun leiða í ljós.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com