-Valentínus-
Í dag heldur eitthvað brot af mannkyninu uppá dag heilags Valentínusar. Einhver Bandaríkjamaður fékk þá flugu í kollinn að fara að senda kort til ástvina á þessum degi og í dag er þetta orðin gósendagur (sbr. gósentíð "Is that a word? It is now") hjá korta-, blöðru- og súkkulaðiframleiðendum og auðvitað eru Íslendingar farnir að taka upp þessa siði. Af hverju höldum við ekki frekar upp á dag heilags Patreks (ekki landsliðsmanns í handbolta, hey drum drum tiss!!!)? Það er alvöru hátíð þar sem menn reyna að drekka eins mikinn bjór og þeir geta.
Annars er Júróvisjón á morgun og hugsanlega af þeim völdum er ég búinn að vera með Eitt lag enn á heilanum undanfarnar mínútur. Þreytist enginn nú skal dansa það sem eftir er. Sjitt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home