föstudagur, febrúar 21, 2003

-Fótbolti-
Á morgun mun liðið mitt Kóngarnir spila æfingaleik á gervigrasinu í Laugardal við lið sem heitir Nings Utd. Við spiluðum við þessa drengi í utandeildarkeppninni í fyrra og unnum nokkuð sannfærandi 3-1 og á ég ekki von á öðru en að við leikum sama leikinn á morgun. Ég hvet alla áhugamenn um frekar slappa knattspyrnu til að skella sér í Dalinn kl. hálf átta annað kvöld. Þeir verða ekki sviknir.
Svo eru Kóngarnir komnir með svo rosalega flott spjallborð á síðuna að það eitt og sér réttlætir að menn klikki á linkinn. Áhugamenn um góð spjallborð verða ekki sviknir af því.

Svo í lokin kemur hérna smá poppþraut og í þetta skiptið verður hún ansi krefjandi svona aðeins til að stinga uppí þessa hrokafullu besserwissa sem svöruðu síðustu getraun. Spurt er úr hvaða lagi er þetta textabrot, með hverjum og af hvaða plötu?

I live with my justice
I live with my greedy need
I live with no mercy
I live with my frenzied feeding
I live with my hatred
I live with my jealousy
I live with the notion
That I don't need anyone but me


Annars óska ég ykkur góðrar helgar og segi bara góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com