fimmtudagur, febrúar 20, 2003

-Draumaráðningar-
Mig dreymdi alveg fáránlegan draum í nótt. Yfirleitt eru draumarnir mínir bara kjánalegir og á engan hátt færandi í frásögur. Í þessum draumi var ég sem sagt að spila handbolta( sem er náttúrulega fáránlegt eitt og sér) með nokkrum þjóðþekktum handboltamönnum. Í mínu liði voru m.a. Jason Kr. Ólafsson og Páll Þórólfsson.....og svo að sjálfsögðu Óskar Guðjónsson saxófónleikari!!! Óskar sem sagt spilaði handbolta með saxann í annari hendi. Svo eftir smá tíma voru allir í liðinu komnir með blásturshljóðfæri í hendurnar nema ég. Jason var t.d. með trompet og Páll Þórólfs með saxófón. Svo gerist það að ég fæ boltann í hendurnar og brýst í gegn en næ skoti sem er varið en dómarinn dæmir vítakast sem við náum að skora úr. Menn fagna svo markinu eins og gengur í íþróttum en láta ekki þar við sitja heldur blása líka hátt og snjallt í hljóðfærin sín. Svo endar draumurinn.

Nú er það spurning, er ég klikkaður eða merkir þetta eitthvað annað?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com