-Atti-
Hvaða hálfvita datt í hug að fá Ólaf H. Torfason til að lýsa BAFTA hátíðinni í gær. Maðurinn gjörsamlega eyðilagði þessa verðlaunahátíð einn síns liðs og er það ekki lítið verk. Hann blaðraði stanslaust ofan í það sem verið var að segja og fóru öll gamanmál hjá hinum annars stórfyndna Stephen Fry algjörlega framhjá manni af því að Ólafur var að reyna að segja okkur hvað Fry var að segja en missti svo sjálfur af helmingnum af því sem fór fram. Til hvers í ósköpunum þarf að hafa einhvern þýðanda og þul á svona hátíðum. Þeir fáu sem skilja ekki ensku geta í það minnsta nokkurn veginn áttað sig á því sem er að gerast. Það þurfti ekki Ólaf H Torfason til að segja mér að það hefði verið Nicole Kidman sem fékk verðlaunin, ég sá það gerast.
Eitt í viðbót, af hverju voru Grammy verðlaunin ekki sýnd í gær?
Annars er ég bara þokkalega hress.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home