-Markaþurrð á enda-
Liðið mitt Kóngarnir gerði jafntefli í gær gegn Nings Utd. í alveg ágætis fótboltaleik. Það sem helst bar til tíðinda í leiknum var það að leikmaður númer 23, enginn annar en Sverrir Þór Sævarsson (jú einmitt, höfundur þessarar síðu) skoraði sitt fyrsta mark fyrir Kóngana í háa herrans tíð. Guðmundur Marinó, hægri kantmaður liðsins, braust upp kantinn, lék upp að endamörkum og sendi boltann fyrir markið þar sem hann fór í gegnum þvöguna og á fjærstöng var mættur leikmaður nr.23 sem setti hann snyrtilega í markið með vinstri og jafnaði þar með leikinn 1-1.
Kóngarnir verða að teljast klaufar að hafa ekki náð að sigra í leiknum en það er greinilegt að það er allt á uppleið hjá þessu upprennandi stórveldi.
Það er greinilegt að ég er að vanmeta tónlistargáfur lesenda síðunnar í þessum poppgetraunum mínum. Það er von á nýrri getraun von bráðar og ég lofa því að hún verði gríðarlega þung.
Þangað til, góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home