-Katti-
Bono estende.
Ég vildi að ég kynni ítölsku. Ekki það að mig langi að fara að halda uppi löngum samræðum á því tungumáli. Nei, ástæðan er aðallega sú að það er þáttur á Rai uno á breiðvarpinu sem mig langar svo að vita hvað gengur út á. Þessi þáttur er nánast öll kvöld og er einhvers konar viðtalsþáttur. Stjórnandinn er svona miðaldra maður, með millisítt hár og kringlótt gleraugu. Hann situr við endann á borði og sitthvoru megin við hann sitja yfirleitt algjörar fegurðardrottningar....stundum gamlir kallar líka og þetta fólk segir yfirleitt ekki neitt en þess í stað er alltaf símaviðtal við eitthvað fólk sem við fáum aldrei að sjá, við heyrum bara röddina í gegnum símann. Ég skil ekki alveg af hverju fólkið í símanum er ekki fengið í sjónvarpssal og hvaða hlutverki þessar fegurðardrottningar gegna. Reyndar virðast bara vera fallegar konur í ítölsku sjónvarpi, ég hugsa að ljótum konum sé hreinlega bannað að koma í ítalskt sjónvarp......og er það vel.
En þangað til næst, gente di mare og Boutros boutros gali. (lifið heil og góðar stundir)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home