miðvikudagur, febrúar 26, 2003

-Nóa-
Þessi frétt var á mbl.is í kvöld:

Skaut fjóra til bana í Alabama
Maður í atvinnuleit hóf skothríð á ráðningaskrifstofu í Huntsville í Alabama-ríki Bandaríkjanna í dag með þeim afleiðingum að fjórir létu lífið og sá fimmti særðist.


Ég ætla að "skjóta" á að þessi maður sé ennþá atvinnulaus (föttuðuð þið þennan). Ég er ekkert svo viss um að þetta sé besta leiðin til að verða sér úti um vinnu. Vinnuveitendum er víst frekar illa við að ráða fólk sem á það til að missa stjórn á skapi sínu og myrða fólk upp úr þurru. Lögreglan átti víst mjög auðvelt með að finna hann þar sem hann hafði sett heimilisfangið sitt á atvinnuumsóknina. Þeir hafa örugglega ekki einu sinni þurft að fara heim til hans til að ná í hann, þeir hafa bara hringt og boðað hann í atvinnuviðtal á stöðinni....hey drum drum tiss.....ahh twenty dollars get outta here.

Annars var það ekki fleira í kvöld
Minia conietera exteria......scorzio!!! Boutros boutros gali.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com