-Krikketleikmenn.....-
....eru sorglegustu íþróttamenn sem ég veit um. Hví slengi ég þessu svona fram? Jú þannig er mál með vexti að ég komst að því í gær að það er heimsmeistaramót í gangi í þessari sniðugu íþrótt og Ástralir voru að detta úr mótinu......og hví skyldu þeir hafa dottið út? Nú hugsa eflaust einhverjir með sér að þeir hafi bara hreinlega tapað sinni viðureign, en nei nei, þeir duttu út af því að það fór að rigna!!!!! Já krakkar, Ástralir voru s.s. að spila við Sri Lanka (en ekki hvað) og þurftu að vinna til að komast áfram og voru í nokkuð vænlegri stöðu þegar allt í einu fór að dropa. Krikketleikmenn eru greinilega ofurviðkvæmir menn og ákveðið var að hætta bara leiknum og úrskurða jafntefli og þar með duttu Ástralir út. Já það er ekki öll vitleysan eins í kýrhausnum.
Eða eins og Ron Manager sagði: Cricket? Too much math!!!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home