laugardagur, mars 01, 2003

-Kvef dauðans-
Ef það er eitthvað sem ég hata meira en Westlife, vinstri græna og róttæka umhverfisverndarsinna þá er það kvef. Ég er einmitt búinn að vera með eitthvað helv.....kvef síðustu daga og það er að gera mig geðveikan. Gerði reyndar þau mistök að fara á fótboltaæfingu í gær í beljandi rigningu og held að það hafi allavega ekki lagað kvefið. En blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu senda samúðarkveðjur er bent á kommentakerfið hér fyrir neðan.

En það er til eitt gott meðal við kvefi og það heitir bjór. Ég er einmitt að spá í að skella þessu bara upp í kæruleysi og fara á bjórkúr í kvöld og sjá hvort það sljákkar ekki eitthvað í þessu. Held það standi í bókinni Heimilislæknirinn að bezta ráðið við kvefi sé ca. tveir til þrír lítrar af kældum Heineken. Eða eins og maðurinn sagði: " Beer. Now there's a temporary solution" og ég held að sami maður hafi líka sagt : " To alcohol! The cause of - and solution to - all of life's problems!"

En allavega, góða helgi og góðar stundir
Boutros boutros gali!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com