mánudagur, mars 03, 2003

-300 milljónir-
Ég held að Osama bin Laden verði aðeins að fara að hugsa sinn gang. Maðurinn sem kom sterkur inn í hryðjuverkaheiminn árið 2001 er strax farinn að hugsa um að endurvinna gömul verk. Hann var s.s. að spá í að endurtaka árásina á Pearl Harbour. Hefði væntanlega átt að heita Pearl Harbour 2 (PH 2, eða Ph 2 er það ekki sýrustig?) eða jafnvel Pearl Harbour ´03. Það er oft svona með menn sem koma sterkir inn, eiga kannski tvo hittara, að þeir vilja oft missa það fljótt. En sem betur fer varð ekkert úr þessum áformum hans, ég get ekki ímyndað mér hversu leiðinleg bíómyndin hefði orðið sem gerð hefði verið um þessa árás.....allavega miðað við hvað sú fyrri var leiðinleg.

Jón Ásgeir í Baugi bauð Davíð Oddssyni víst 300 milljónir fyrir að láta sig í friði!! Mér finnst að ég eigi nú inni hjá Baugi nokkrar krónur, allavega hef ég látið fyrirtækið algjörlega afskiptalaust í gegnum tíðina. Svo var Jón Ásgeir að væla yfir því að menn gætu leyft sér að "ákæra og dæma borgara í beinni útsendingu". En það hlýtur þá að vera í lagi að nota heilt dagblað undir árásir á ríkisstjórnina og það án þess að gefa það upp hverjir eigi blaðið. Já félagar, ég er brjálaður.

En fyrsti titill (af þremur) hjá mínum mönnum í Liverpool er kominn í hús. Þessi var nú frekar auðunninn, ansi lítil mótspyrna sem mótherjinn sýndi í þessum leik. Þar af leiðir að mínir menn eru búnir að tryggja sæti sitt í Evrópukeppni á næsta tímabili, fyrstir allra liða á Englandi.....ekki amalegur árangur það. Það sem meira er að ekkert lið hefur unnið Deildabikarinn jafnoft sem gerir þetta náttúrulega enn glæsilegra. Mótherjinn hafði reyndar bara unnið þessa keppni einu sinni áður þannig að kannski var bara reynslan ekki til staðar hjá þeim fyrir svona stóran úrslitaleik. En þeir eru með ungt lið og koma eflaust sterkari inn á næsta tímabili.

Demóið af CM4, sem er bezti tölvuleikur allra tíma, er komið í hús. Það tekur smá tíma að átta sig á öllum breytingum en leikurinn lofar svo sannarlega góðu og er ansi hætt við að maður verði límdur við þennan leik. Leikurinn sjálfur á víst að koma í lok mánaðarins og eftirvæntingin er gríðarleg.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com