þriðjudagur, mars 04, 2003

-Ha Ha-
Þetta er einhver fyndnasta frétt sem ég hef séð lengi, þetta er tekið af mbl.is:

Jackson sagður hafa ráðið töfralækni til að leggja álög á Spielberg

Fréttir hafa nú borist af því að bandaríska poppstjarnan Michael Jackson hafi ráðið afrískan töfralækni til að leggja álög á kvikmyndaleikstjórann Steven Spielberg. Er Jackson sagður hafa greitt galdramanninum jafnvirði 1,2 milljóna króna til að leggja álög á Spielberg og David Geffen, yfirmann Dreamworks kvikmyndaversins fyrir þremur árum. Tímaritið Vanity Fair segir að Jackson hafi einnig baðað sig í kindablóði og látið slátra 42 kúm til að tryggja að álögin héldu.

Þetta er nú örugglega mjög áreiðanleg frétt. Gaman að sjá hvað þetta hefur líka virkað hjá Jackson.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com