laugardagur, mars 08, 2003

-Ekki alveg úrslitastund-
Eins og margir muna eflaust eftir gerði ég ráð fyrir að í gærkvöld myndu úrslit ráðast í Trivial keppni okkar félaganna. Það gerðist sko aldeilis ekki því okkur tókst ekki að klára nema eitt spil. Venjulega höfum við verið að taka svona 4-5 spil á kvöldi en í gær var það ekki að gerast. Ástæðan hefur mjög lítið með þekkingu manna að gera (samt eitthvað aðeins) heldur var meira lagt uppúr því að segja sögur og fara með gamanmál og almenn fíflalæti.
En viðureign gærkvöldsins fór þannig að Davíð og Stefán unnu þetta eina spil og hafa því aukið sitt forskot í tvö stig. Staðan er s.s. 6-4 núna (ég gaf þeim óvart eitt aukastig í pistli gærdagsins) og er alveg ljóst að mitt lið þarf að fara að hysja upp um sig buxurnar og bíta í skjaldarrendur og taka á honum stóra sínum og.......og.........og.......

En í lokin smá textabrot:
Another resembles
one autumn resembles
another one


Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com