sunnudagur, mars 09, 2003

-Stórleikur-
Liðið mitt Kóngarnir er að fara að spila æfingaleik eftir rétt rúman klukkutíma. Þetta er engin smá viðureign, Hafnarfjarðarslagur við FC Kidda sem við höfum spilað þrisvar sinnum við. Ekki er tölfræðin beint með okkur í þessum viðureignum því við höfum tapað öllum þessum leikjum en nú á að gera betur. Ég ætla ekki að lofa marki frá mér en miðað við frammistöðu mína í síðasta leik er aldrei að vita uppá hverju maður tekur.
Úrslitin verða birt hérna seinna í dag.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com