fimmtudagur, mars 13, 2003

-Gaman gaman-
Kóngarnir töpuðu í gær fyrir einhverju utandeildarliði 1-2 í Egilshöllinni. Ég var ekki með, enda rifbeinsbrotinn, en þó held ég að það hafi litlu breytt. Menn voru andlausir og þetta var frekar lélegur leikur af okkar hálfu. Ekki mun verða eytt meiri tíma í að fjalla um þennan leik.

Ég er farinn að hafa alvarlegar áhyggjur af geðheilsu Bandaríkjamanna. Þeir eru hættir að nota orðið "french" ef þeir mögulega komast hjá því. French fries er orðið freedom fries og french toast er orðið freedom toast!!!! Allt þetta af því að Frakkar vilja ekki fylgja Runna Ráðalausa að málum í stríðsbrölti hans (sánda ég eins og kommúnisti núna? Held ég hafi aldrei áður notað orðið stríðsbrölt). Þar að auki er farið að banna mönnum að ganga í bolum með friðaráletrunum. Einhver maður var handtekinn í verslunarmiðstöð af því að hann neitaði að fara úr bol með friðaráletrun!!!

Annars held ég að það séu sjö dagar í stríð. Byrjum niðurtalningu núna....

Góðar stundir

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com