föstudagur, mars 14, 2003

-Hefur þú bjargað lífi í dag?-
Ég var að fá þær skemmtilegu fréttir að ég hefði nánast uppá eigin spýtur bjargað mannslífi.....já og ekki bara einu heldur tveimur mannslífum. Ég sem yfirmaður Iridium leigu Landssímans lánaði tveimur frönskum ferðalöngum Iridium síma til að þau gætu verið í sambandi ef þau skyldu lenda í vandræðum......og viti menn, þau lentu í vandræðum og notuðu þennan síma til að hringja í björgunarmenn sem síðan mættu á svæðið og komu þessu franska pari til byggða. Það er ágætis byrjun á degi að fá þær fréttir að maður hafi bjargað mannslífum.

...held samt að ég yrði ekki vinsæll í Bandaríkjunum fyrir að hafa bjargað frönskum mannslífum og þess vegna ætla ég að kalla þessa frönsku ferðamenn, frelsis ferðamenn.

Niðurtalning til stríðs heldur áfram og nú telst mér til að það séu sex dagar til stríðs. Þá held ég að Stöð 2 breyti nafninu sínu í Stríðztöð.

En þangað til, reynum að hugsa vel um náungann og reynum að bjarga lífi náungans ef við mögulega getum.
Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com