sunnudagur, mars 16, 2003

-Róleg helgi-
Þessi helgi hefur verið með eindæmum róleg. Fór reyndar á föstudagskvöldið til Jónsa félaga míns hvar drukkinn var bjór og spilaður FIFA 2003 sem er algjör snilldarleikur. Árangur minn varð nú reyndar ekki merkilegur, varð í þriðja sæti með einn unninn leik, tvö jafntefli og þrjú töp.

Í gær fór ég í Skífuna og festi þar kaup á þremur geisladiskum. Þetta eru alltsaman diskar sem mig hefur langað í í langan tíma og ákvað ég loks að láta verða af því í gær. Þessir diskar eru: Pet Sounds með Beach Boys, Dark side of the moon með Pink Floyd og The soft bulletin með Flaming Lips. Alltsaman mjög flottir diskar og ættu að vera til í öllum betri diskasöfnum.

Kóngarnir eiga svo að spila enn einn æfingaleikinn annað kvöld á móti FC CCCP og er allt útlit fyrir það að ég verði að horfa á þann leik líka þar sem ég er ennþá að rogast með þetta helv......rifbeinsbrot.

Núna eru fjórir dagar í stríð skv. minni spá, þó svo að Ztöð 2 telji að það séu innan við þrír dagar, og sýnist mér að sjónvarpslausi fimmtudagurinn sem bróðir minn og Bjöggi eru að skipuleggja fari útum þúfur vegna þessa.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com