fimmtudagur, mars 20, 2003

-Viðrar vel til loftárása-
Þá er allt farið á fullt í Írak og sprengjum rignir yfir Bagdad og fleiri staði sem ég kann eigi að nefna. Ég vakti til kl. hálf tvö í nótt og beið eftir einhverju sem ekki gerðist. Svo þegar ég vakna í morgun þá voru árásir búnar að standa yfir í nokkurn tíma. Þetta er náttúrulega ómöguleg tímasetning og virðist algjörlega stíluð inná prime time í Bandaríkjunum en ekki á Íslandi. Þetta er eitthvað sem þarf að laga.
....annars á maður ekkert að vera að grínast með stríð.

Vil minn unnendur góðrar knattspyrnu á það að í kvöld fer fram stórleikur. Leikurinn er á milli Kónganna og ÍH og fer fram í Egilshöllinni kl. ellefu í kvöld. Gríðarleg eftirvænting og spenna í mannskapnum. Ég verð því miður að hryggja mína aðdáendur með því að ég verð ekki með í kvöld af kunnum ástæðum.

Já og svo heldur Baráttan um Bretland áfram í kvöld. Liverpool tekur á móti Celtic frá Skotlandi. Þetta verður rosalegt kvöld. Ég hlakka til.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com