-Innan við sólarhringur til stríðs-
Bandaríkjamenn hafa hafið loftárásir á Írak. Fyrst um sinn eru það ekki sprengjur sem eru notaðar heldur bréfmiðar. Þetta er örugglega partur af þessu "öðruvísi stríði" sem þeir eru alltaf að tala um þessa dagana.
Mbl.is var að fjalla um þetta og skv. þeirra frétt er boðskapurinn á þessum miðum ansi einkennilegur:
Bandarískar flugvélar hafa í dag dreift um tveimur milljónum miða yfir Írak. Á miðunum er orðsending til íbúa landsins þar sem segir að stríði sé ekki beitt gegn óbreyttum borgurum. Auk þess eru íraskir hermenn hvattir til að leggja niður vopn og óhlýðnast yfirboðurum sínum og kveikja í olíulindum landsins.
Kveikja í olíulindum landsins? Til hvers? Er það ekki einmitt það verðmætasta sem þetta land býður uppá? Er olían ekki einmitt ein aðalástæða þess að Runni Ráðalausi er að fara í þetta stríð?
Nú er ég alveg hættur að skilja.....enda svaf ég ekki baun í nótt útaf þeim hörmungum sem hafa dunið yfir mig síðustu daga sem ég hef maroft rætt um hér á síðunni og óþarfi er að gera frekari skil.
Annars er stríðið að bresta á. Einhverjir Írakar virðast vera að hlaupa undan merkjum, allavega eru einhverjar fréttir í gangi um að aðstoðarforsætisráðherrann sé flúinn land.
Þó ég sé fylgjandi ríkisstjórn Íslands get ég ekki alveg tekið undir þessa einörðu afstöðu sem hún tekur með Blair og Bush en við erum þarna í hópi með stórþjóðum eins og El Salvador, Erítreu (sem er greinilega til), Eþíópíu, Níkaragúa, Úsbekistan og að ég held örugglega líka Fjarskanistan þó svo að þeirra stuðningur sé ekki orðinn opinber.
En þetta er greinilega allt að brezta á og allt saman í beinni.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home