-Hver er þessi Scooter?-
Hvar hefur hann haldið sig þessi Sverrir sem var alltaf að blogga hérna í gamla daga? Þessa spurningu hef ég heyrt á vörum landsmanna undanfarna daga. Bloggleysi mitt tengist á engan hátt úrslitum úr leik minna manna og keltanna frá Glasgow í Skotlandi. Sá leikur var bara hreinlega lélegur af hálfu minna manna og áttu þeir ekkert betra skilið. Og hana nú Örvar!!!
Hins vegar komu gleðifréttir í gær þegar Liverpool rúllaði upp Leeds á ansi sannfærandi hátt. Gleði gleði gleði!!!
Annars var lítil gleði í því að sjá einhverja menn í Danmörku kveikja í íslenska fánanum. Nú bíður maður bara eftir því að flugvélum verði flogið á kaupfélagsblokkina, enda stærsta blokkin í Hafnarfirði og helsta táknmynd viðskipta í bænum. Vona að Kristján félagi minn hafi ekki haft neitt með þessa fánabrennu að gera.
Þegar ég mætti til vinnu í morgun þá biðu fyrir utan búðina hátt í hundrað krakkar sem ætluðu að kaupa miða á tónleika með einhverjum Scooter sem er eitthvað þýskt fyrirbæri (að því ég bezt veit) sem spilar teknó tónlist. Síminn er s.s. að selja miða á þetta og er búin að vera brjáluð traffík vegna þess í allan dag. Ég verð bara að viðurkenna að ég þekki ekki eitt einasta lag með þessum gaur/hljómsveit. Tralalala.....
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home