fimmtudagur, mars 27, 2003

-Hátíðahöld-
Á morgun kemur út tölvuleikur allra tölvuleikja. Já krakkar mínir, á morgun kemur fjórði hluti af Championship manager og þá verður sko kátt í höllinni. Reyndar lifum við á gervihnattaöld (eða gervi-natta eins og það hljómaði hjá Pálma Gunnars) og þaraf leiðir að ég get væntanlega fengið þennan leik í dag skrifaðan og krakkaðan og hvað þetta heitir nú allt saman sem menn gera við svona ólöglegar útgáfur af leikjum. Þetta segir manni bara eitt, það verður vart litið uppúr tölvunni um helgina, nema til að fá sér bjór og horfa á landsleik Íslands og Skotlands.

Ég er loksins farinn að geta hreyft mig að einhverju ráði eftir þetta æðislega rifbeinsbrot og af því tilefni fór strákurinn aðeins út að hlaupa í gær. Tók svona létt skokk og tókst að komast yfir heila þrjá kílómetra í gær sem er svo sem alveg nóg fyrir mann í jafnlélegu formi og ég er í. Svona til að setja þetta í samhengi, þá er þetta jafnlangt og allir kerskálarnir í álverinu í Straumsvík til samans!!! Þetta er rétt tæplega einn tíundi af maraþonhlaupi þannig að sjá má hvílíkt afrek þetta er.

Allt í fína Finnbogi sagði maðurinn og á það vel við núna

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com