-Skattsvik?-
Ég var loksins að skila af mér skattframtalinu. Mér líður hálfpartinn eins og ég hafi verið að svíkja undan skatti. Það var nánast ekkert sem ég þurfti að fylla út svo ég hlýt eiginlega að hafa gleymt einhverju. Var meira að segja mjög að spá í að ljúga til um einhverja happdrættisvinninga eða eitthvað bara til að geta skrifað eitthvað inn. Skattstjóri tekur mig örugglega í tékk og áætlar að þessi drengur lumi á einhverjum leynireikningum á Jómfrúreyjum eða eitthvað álíka.
Svo lét ég reikna hvað ég þarf að borga í álag í ágúst og það eru einhverjar tíu þúsund krónur sem að megninu til fara í framkvæmdasjóð aldraðra!!! Hvað eru aldraðir alltaf að framkvæma svona mikið? Ég hef borgað í þennan sjóð þeirra í nokkur ár eins og margir aðrir en svo gera aldraðir ekkert annað en að kvarta undan því hvað þeir hafi það slæmt. Held það væri ráð að þeir slökuðu aðeins á í framkvæmdunum og færu að nota peningana í eitthvað þarfara.
Annars var ég að uppgötva nýja hljómsveit í kvöld. Þetta er spænska hljómsveitin Ketama sem spilar nokkurs konar fönk fusion með spænskum flamenco áhrifum. Þessi lýsing á eflaust ekki eftir að heilla marga en ég get lofað því að þetta sándar bara helv.....vel. Endilega kíkja á þetta.
Má til með að minnast aðeins á stríðið í Írak. Runni og félagar hafa undanfarnar vikur og mánuði verið að dásama tæknilega yfirburði bandaríska hersins og hversu nákvæmar allar sprengjurnar þeirra eru. Nú er vika búin af stríðinu og ég held að mesta mannfall Breta og Bandaríkjamanna sé af völdum þeirra eigin manna (ekki eiginmanna). Þessar sprengjur þeirra eru svo tæknilegar að þær gera engan greinarmun á breskum hermanni og íröskum. Þar að auki hafa sprengjur "óvart" farið á olíuhreinsistöð í Íran og einhver lenti í Kúveit að mig minnir. Einhvern veginn finnst mér að orðið "úpps" sé ansi mikið notað af hermönnum á þessu svæði.
Annars er það af mér að frétta að ég er allur að koma til eftir rifbeinsbrotið og er jafnvel farinn að sjá fram á fótboltasprikl um næstu helgi. Já það er gleði víða um heiminn.
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home