-It was the best of times, it was the worst of times-
Almenn bloggleti hefur hrjáð mann eins illilega og asísk inflúensa síðustu daga. Reyndar ætlaði ég að blogga í gær en hvað sagði herra Blogger þá? "Publishing temporarily unavailable" takk fyrir. Bloggerinn hefur farið soldið í pirrurnar á mér undanfarið en ég hef svo sem engan rétt á að kvarta því ekki er ég að borga krónu fyrir þessa þjónustu. Eftir sem áður vill maður að svona hlutir séu í lagi. Ekki yrði maður ánægður ef Skjár einn dytti út í nokkra daga......tja ekki nema það væri Judging Amy maraþon, eða Judging Amaþon eins og ég myndi kalla það.....eða jafnvel Amy´s Judgaþon......hmmmm um hvað var ég aftur að tala?
Annars sýndu Hafnfirðingar það og sönnuðu í gær hversu magnaðir húmoristar þeir eru. Aprílgabbið um ránið í Sparisjóðnum við Reykjavíkurveg var brilljant og ótrúlega vel útfært. Svaka flottar myndir úr "öryggiskerfi" bankans. Eins og bankar í Hafnarfirði hafi þörf á öryggiskerfi. Löggan kölluð á svæðið og allt girt af. Snilldar gabb og sveitungum mínum til mikils sóma.
Annars er allt rólegt á vesturvígstöðvunum eins og staðan er núna. Læt vita af mér seinna.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home