-Árshátíð og læti-
Ég var búinn að skrifa langan og ítarlegan pistil um hvað dreif á daga mína í gær en á einhvern óskiljanlegan hátt eyddist hann útúr bloggernum!!! Maður er alveg að fá sig fullsaddan af þessum blogger manni, hann er ekki að gera hlutina góðu.
En allavega, gærdagurinn var um margt merkilegur. Hann byrjaði á því að Mike nokkur Riley gerði heiðarlega tilraun til að eyðileggja daginn gjörsamlega með fáránlegri dómgæslu í leik Liverpool og Man Utd. Þess má geta að Riley þessi er sami maður og rak Lárus Orra útaf í landsleik á móti Búlgaríu fyrir að klappa leikmanni á kinnina!!! Þessi maður er á góðri leið með að vinna sig á sama virðingarstall og Graham Poll sem einmitt eyðilagði einn síns liðs leik minna manna gegn Arsenal á Highbury fyrir nokkrum árum síðan þar sem ég var einmitt á meðal áhorfenda.
Sökum lélegs dómara telst þessi leikur ekki marktækur og því verður ekki eytt meira plássi í hann hér.
Svo var árshátíð Landssímans haldin með pompi og pragt í gær. Skemmtiatriðin voru mörg og misjöfn að gæðum. M.a. kom Björk Jakobs og lék eitthvað úr Sellófón eða hvað það nú heitir og verð ég að segja að mér fannst það bara mjög ófyndið. Maður er búinn að heyra svo mikið um hvað þetta sé fyndið og sniðugt en það var allavega ekki alveg að gera sig í gær. Svo þar á eftir komu Halli og Laddi sterkir inn. Voru með frábært atriði þar sem þeir tóku alla sína helstu slagara af öllum gömlu góðu plötunum þeirra. Þarna voru lög eins og Roy Rogers, Síminn, Gibba Gibb, Austurstræti og fleiri klassíkerar. Reyndar voru sketsarnir á milli laganna svona upp og ofan.
Svo stigum við innanbúðardrengirnir á svið og trylltum lýðinn með hljóðfæraslætti og söng. Fengum allsvakalega góð viðbrögð frá salnum og m.a.s. forstjórinn kom til okkar eftir atriðið og vill endilega fá okkur til að spila meira innan fyrirtækisins, í einhverjum mannfögnuðum og þess háttar......mætti líka alveg hækka launin okkar í leiðinni.
Svo þegar líða tók á nóttina hélt ég niður í bæ ásamt félögum mínum þeim Davíð og Ingvari hvar drukkinn var bjór og rætt um landsins gagn og nauðsynjar. Svo eftir nokkra bjóra og eina heita vöfflu með rjóma var haldið heim á leið. Góðu kveldi var senn lokið og það var glaður gumi sem lagðist á koddann eftir viðburðarríkan dag.
Þangað til næst
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home